Hún
Hún syngur og semur,
en leyfir mer ekki sjá.
Ótrúlegt hvað hún gefur
en krefst lítils að fá.

Hún er fögur.
Hún er best.
Þegar ég segi henni sögur,
hún hlustar á mest.

Þú ert mitt æði
og yndi.
ég veit ekki hvar ég væri,
ef ég ei þig fyndi.  
Ívan B. Jónsson
1992 - ...


Ljóð eftir Ívan B. Jónsson

Stundum
Hún
Fastur er ég fuglinn fljúgandi