Börn eilífðarinnar
Eilíf
eru börnin
í samfélagi
hjartnanna,
kirkjunni
sem öllum
er opin

Þar er lagt
á borð
fyrir alla,
það svignar
undan kræsingum
náðar þinnar
Drottinn

Bikar þinn,
barmafullur,
börn eilífðarinnar
þakka þér
Drottinn
 
Vídalín
1959 - ...


Ljóð eftir Vídalín

Líf
Börn eilífðarinnar
Gjöfin
Óvissan