Kondu sæl.
Þú snýrð þér oft að mér
með augum sem ég þekki.
Ég vissi samt alltaf af þér
en þú vildir mig ekki.
Ég er þér ekki neitt
eins og skýin sem líða.
Samt er það eitthvað eitt
sem ekki mátti bíða.
Ég sagði kondu sæl
þú sorg sem býrð hjá tröllum.
En Þá snéri hún sér á hæl
og sagðist búa hjá öllum.
með augum sem ég þekki.
Ég vissi samt alltaf af þér
en þú vildir mig ekki.
Ég er þér ekki neitt
eins og skýin sem líða.
Samt er það eitthvað eitt
sem ekki mátti bíða.
Ég sagði kondu sæl
þú sorg sem býrð hjá tröllum.
En Þá snéri hún sér á hæl
og sagðist búa hjá öllum.