Dalurinn.
Þessi dalur er drungi
þar sem drengurinn ungi.
Lét ljósin dreyma
um lífið heima.
Þessi dalur er dauður
í dögum mínum auður.
Martröð minningin er
moldin er blóðug hér.
Þessi grjót þessi grimmd
er hin glataða synd.
Tár himins hvað viljið þið
hráslagarleg eins og við.
Innst inni í hlekkjum
úr kviku þinni þekkjum.
Grátið fjöll og gömul ár
græðið þessi djúpu sár.
Inndalur er samt okkar
og álengdar lokkar.
Oft blíður og bjartur
líka brunninn og svartur.
þar sem drengurinn ungi.
Lét ljósin dreyma
um lífið heima.
Þessi dalur er dauður
í dögum mínum auður.
Martröð minningin er
moldin er blóðug hér.
Þessi grjót þessi grimmd
er hin glataða synd.
Tár himins hvað viljið þið
hráslagarleg eins og við.
Innst inni í hlekkjum
úr kviku þinni þekkjum.
Grátið fjöll og gömul ár
græðið þessi djúpu sár.
Inndalur er samt okkar
og álengdar lokkar.
Oft blíður og bjartur
líka brunninn og svartur.