Móðir mín.
Ég á vonir og móður ást og mátt
og minningar sem aldrei úr mér líða.
Að orðum hennar bý er ekki fóru hátt
að enginn verði maður nema bíða.
Í öllu hennar fasi ungur sá
þá einu mynd er ég mun aldrei gleyma.
Hún sagði mér að aldrei yrði þrá
ef allt er leyft og enginn fær að dreyma.
og minningar sem aldrei úr mér líða.
Að orðum hennar bý er ekki fóru hátt
að enginn verði maður nema bíða.
Í öllu hennar fasi ungur sá
þá einu mynd er ég mun aldrei gleyma.
Hún sagði mér að aldrei yrði þrá
ef allt er leyft og enginn fær að dreyma.