Stattu þig
Illgjarnir jafnan erta mann
og angra hverja stund.
Ekki beyja þig berrassaðann
og berja láta sem hund.
Reyndu að verja haus og hupp,
hugsa um móðurjörð,
hysja buxunum heldur upp
og herða vel að gjörð.
Varast´ bljúgan hundahátt,
að hvika við augn´tillit.
Sálina aldrei selja mátt,
sál er manns eina vit.
og angra hverja stund.
Ekki beyja þig berrassaðann
og berja láta sem hund.
Reyndu að verja haus og hupp,
hugsa um móðurjörð,
hysja buxunum heldur upp
og herða vel að gjörð.
Varast´ bljúgan hundahátt,
að hvika við augn´tillit.
Sálina aldrei selja mátt,
sál er manns eina vit.
Ásmundur E. Daðason VG var í fréttum 10.7.09, vildi eiga sannfæringu sína. Ég skrifaði honum nokkur stuðningsorð og samdi honum þetta hvatningarljóð