Dettifoss.
Þar sem brattir hamrar reistir rísa
ryðst þú fram af brún.
Frá jökulheimum elds og ísa
yfir mörk og tún.
Glökkt er það sem gerir fossa líka
gaddsins kulda nál.
Heljargreipar hamra í þig slíka
hatramlega sál.
Að þér ganga tröll um troðnar slóðir
en tvístíga hér.
Aðrir sitja úfnir vegamóðir
ef þeir storka þér.
Í rómi þínum heyrast skarpir slættir
strengja hljóðin örg.
Er rammir skornir rúnum vættir
rista stuðlabjörg.
Undir hrikalegum æðis flaumi
er undarleg glóð.
Er í rökkri andar að í draumi
með öræfablóð.
Hún er sveipuð harmsins herkjuböndum
með heljarinnar stög.
Úlfgrár ertu foss í klakahöndum
engin högg né slög.
ryðst þú fram af brún.
Frá jökulheimum elds og ísa
yfir mörk og tún.
Glökkt er það sem gerir fossa líka
gaddsins kulda nál.
Heljargreipar hamra í þig slíka
hatramlega sál.
Að þér ganga tröll um troðnar slóðir
en tvístíga hér.
Aðrir sitja úfnir vegamóðir
ef þeir storka þér.
Í rómi þínum heyrast skarpir slættir
strengja hljóðin örg.
Er rammir skornir rúnum vættir
rista stuðlabjörg.
Undir hrikalegum æðis flaumi
er undarleg glóð.
Er í rökkri andar að í draumi
með öræfablóð.
Hún er sveipuð harmsins herkjuböndum
með heljarinnar stög.
Úlfgrár ertu foss í klakahöndum
engin högg né slög.