Komdu í kvöld.
Ó komdu ástin ein með mér
á morgun iðrumst ei.
Þegar enginn okkur sér
og áður en ég dey.
Já komdu aftur ein í kvöld
en alla kveddu hljótt.
Núna tekur vonin völd
og vakir með í nótt.
Græddu elskan gull í mig
og grænan skógarvið.
Ég vil bara eiga þig
og anda þér við hlið.
Ég skal líka syngja söng
og sæta gefa rós.
Og dreyma þig um dægur löng
og dimmu breyta í ljós.
Ég mun þola súrt og sætt
og svífa hljótt um nótt.
Ég skal faðma barnið fætt
og fylla sálarþrótt.
Og elska þig sem fossa flúð
og faðma í hríðarbyl.
Ég skal búa undir súð
og elska og vera til.
Reyna lifa og lýsa björt
til loka árin öll.
Ef þú klæðist skuggum svört
þá skal ég byggja höll.
á morgun iðrumst ei.
Þegar enginn okkur sér
og áður en ég dey.
Já komdu aftur ein í kvöld
en alla kveddu hljótt.
Núna tekur vonin völd
og vakir með í nótt.
Græddu elskan gull í mig
og grænan skógarvið.
Ég vil bara eiga þig
og anda þér við hlið.
Ég skal líka syngja söng
og sæta gefa rós.
Og dreyma þig um dægur löng
og dimmu breyta í ljós.
Ég mun þola súrt og sætt
og svífa hljótt um nótt.
Ég skal faðma barnið fætt
og fylla sálarþrótt.
Og elska þig sem fossa flúð
og faðma í hríðarbyl.
Ég skal búa undir súð
og elska og vera til.
Reyna lifa og lýsa björt
til loka árin öll.
Ef þú klæðist skuggum svört
þá skal ég byggja höll.