Undir yfirborði
Ísjakar í kafi að mestu mara,
margt er þannig falið sjónum bara.
Aurar margir fyrir lítið fara
og fáir verða ríkir nema að spara.
Þannig okkur glæpir glepja auga,
gott er þeim sem kunna vel að fela
og fást þannig fúlgurnar í hauga
því flestir verða ríkir á að stela.
margt er þannig falið sjónum bara.
Aurar margir fyrir lítið fara
og fáir verða ríkir nema að spara.
Þannig okkur glæpir glepja auga,
gott er þeim sem kunna vel að fela
og fást þannig fúlgurnar í hauga
því flestir verða ríkir á að stela.
Ort 20.08.09