Nótt.
Í nótt mun ég kalla
er kvelda fer
og þagnirnar halla
sér þétt upp að mér.
Á allt er ég lastaði
og liggur við grjót.
Því dögunum kastaði
djúpt út í fljót.
Í nótt mun ég biðja
bænir og tár.
Að þær muni hylja
öll mín sár.
Þig mun ég dreyma
drauminn sem fer.
Er beiskjan heima
heilsar mér.
er kvelda fer
og þagnirnar halla
sér þétt upp að mér.
Á allt er ég lastaði
og liggur við grjót.
Því dögunum kastaði
djúpt út í fljót.
Í nótt mun ég biðja
bænir og tár.
Að þær muni hylja
öll mín sár.
Þig mun ég dreyma
drauminn sem fer.
Er beiskjan heima
heilsar mér.