Jólanótt.
Í sorgum fals og falla
þá finnur Kristur þig.
Í nótt er klukkur kalla
kemur hann til þín.
Er glitra stjörnur geimsins
hann gengur að þér hljótt.
Og birtist börnum heimsins
og blessar þessa nótt.
Hann skilur sorg og mædda
og strýkur burtu tár.
Og sest hjá hinum hædda
og hylur gömul sár.
Hann ber í anda alla
sem eiga ekkert skjól.
Og hvergi höfði halla
og hvergi eiga jól.
þá finnur Kristur þig.
Í nótt er klukkur kalla
kemur hann til þín.
Er glitra stjörnur geimsins
hann gengur að þér hljótt.
Og birtist börnum heimsins
og blessar þessa nótt.
Hann skilur sorg og mædda
og strýkur burtu tár.
Og sest hjá hinum hædda
og hylur gömul sár.
Hann ber í anda alla
sem eiga ekkert skjól.
Og hvergi höfði halla
og hvergi eiga jól.