Óskir rætast
Lengi geta mjóir mæst,
meining er mér nær,
eins vel geti óskir ræst,
og andinn spinnur þær.
Hvert sem færðu lífið leitt,
ljúf þín verða spor,
fáirðu járnið hamrað heitt
og hertan vilja og þor.
Látirðu geysa um gleðidyr
og gáir á báða hönd,
lausnarinn gefur ljúfan byr
og leiði um haf og lönd.
Lengi geta mjóir mæst
og margs er að óska sér
en oft er svo er óskin fæst
að ei hún hentar þér.
meining er mér nær,
eins vel geti óskir ræst,
og andinn spinnur þær.
Hvert sem færðu lífið leitt,
ljúf þín verða spor,
fáirðu járnið hamrað heitt
og hertan vilja og þor.
Látirðu geysa um gleðidyr
og gáir á báða hönd,
lausnarinn gefur ljúfan byr
og leiði um haf og lönd.
Lengi geta mjóir mæst
og margs er að óska sér
en oft er svo er óskin fæst
að ei hún hentar þér.
Ort 16.12.09