Kleópatra uncut
Dökk augun éta þig lifandi
og áður en þú veist af
ertu fangi hugaróra
og sleppur aldrei.

Veikleiki þinn.
Að eilífu.
Augun.

Fylgja þér alltaf, hvert sem þú ferð
hrafntinnusvört með bliki svo skært
svo seiðandi, svo gráðug
og þú sleppur ekki.

Yfir höf, yfir lönd
með staf sinn í hönd
glampar á gullið
í glóandi sól.

Tignarleg sjálf
gullinu skreytt

en alltaf
ná augun,
dökku augun,
heljartaki á þér.

Fangi hugaróra
og þú sleppur aldrei.

Að eilífu.
Augun.  
Miriam Petra
1990 - ...


Ljóð eftir Miriam Petru

Kristín
mamma
Hlutverkaleikur
Kjallararottan
Það sem ég geri
pabbi
Partý?
Stelpurnar í dyrasímanum
Rigningarljóð
Stóllinn
Fiðringur
Á gervihnattaöld
Minningarbrot
Í almenningsvagni
Arnarfjörður
Þú og ég
Ævintýralega súr draumur
Sólin
Ástin í nördheimum
Hið fullkomna líf
16 km
Tölva.
Ís
Góðir tímar
Kæri jóli
Dimma dimma nótt
Aurora Borealis
Bifröst
Ljósið þitt
Tónaflóð
brotin
Litríkt
uppljómun
Fjallafaðmur
Reykjavík
vetur
Haustvísa
kók í gleri með röri
Morgunninn
frá Hadesarheimum
Enn ein djammsagan
Kleópatra
Kleópatra uncut
Bezt í heimi?
Kjötsúpa
hrafninn
janúar
ég á mér draum
Yndislegt
Skólaljóð
ljóðskáldið
Copacabana
heilluð
Grótta
Veðurfréttirnar
Túngata 23
í Skorradal
desembermyrkur
Nýársvísa
helfarir heimsins
Sumarmynd
Undir morgun