Sjálfsímyndin
Hæ,
já, hún hlýtur líka að vera frábær þessi Marta Einarsdóttir alnafna dóttur minnar. Hún sagði í morgunútvarpinu að hún hefði gleði að atvinnu og gaf upp heimasíðu sína: pulsinn.is
´
Hún lagði áherslu á þetta sama og gert er á Kærleiksdögum sem ég hef sótt einu sinni, að menn æfðu sig og æfðu sig í að brosa og hrósa sjálfum sér og efla sjálfsímyndina
og benti hún þar á að segja þetta aftur og aftur: ,,Ég er frábær, ég er klár, ég er góður" og ég greip ræðuna þegar á lofti og orti ljóð dagsins á þessa leið:
Ég veit ég er frábær, ég veit ég er klár,
ég veit ég er andskoti góður
og ég trúi að snilld mín um eilífðar ár
auki mér vegsemd og hróður.
knús frá svarra

Morgunspjall til nokkurra vina 14.2.10, en ég frétti síðar að kynningin á gleðigjafanum hefði verið röng og að hún héti Marta Eiríksdóttir.