Húngurstaðir.
Ég loka dyrum og læðist inn
og leggst í fletið mitt.
Því enn er úti veturinn
með ógnar valdið sitt.
Hvað er þetta hafðu ekki hátt
ég heyri þruskið lágt.
Nú nálgast eitthvað smátt og smátt
nú skellur hurð í gátt !
Er mig að dreyma eða hvað
er óhreint hér á ferð.
Er draugur kannski kominn af stað
með kuta, exi og sverð.
Mun hann éta okkur í nauð
en við sem erum ekki æt.
Bæði fávís, fátæk og snauð
frekar verður súpan sæt.
Hæ hæ hó hó börnin ung og góð
hér er jólasveinki sauður.
Hrópaði hann þar sem hann stóð
og hné svo niður dauður.
og leggst í fletið mitt.
Því enn er úti veturinn
með ógnar valdið sitt.
Hvað er þetta hafðu ekki hátt
ég heyri þruskið lágt.
Nú nálgast eitthvað smátt og smátt
nú skellur hurð í gátt !
Er mig að dreyma eða hvað
er óhreint hér á ferð.
Er draugur kannski kominn af stað
með kuta, exi og sverð.
Mun hann éta okkur í nauð
en við sem erum ekki æt.
Bæði fávís, fátæk og snauð
frekar verður súpan sæt.
Hæ hæ hó hó börnin ung og góð
hér er jólasveinki sauður.
Hrópaði hann þar sem hann stóð
og hné svo niður dauður.