Traust.
Það sem ég forðum færði þér
fann ég innst í sjálfum mér.
Traustið góða og trúin varð
tún án grasa og frosið barð.
Og okkar samband eftir það
ennþá blæðir í hjartastað.
Og hús mitt varð að huldu sál
er hylur gömul leyndarmál.
Því bara ég og bárujárns rið
bárum hússins eldivið.
Sem breiddi út sitt birkisag
er brann einn góðan veðurdag.
fann ég innst í sjálfum mér.
Traustið góða og trúin varð
tún án grasa og frosið barð.
Og okkar samband eftir það
ennþá blæðir í hjartastað.
Og hús mitt varð að huldu sál
er hylur gömul leyndarmál.
Því bara ég og bárujárns rið
bárum hússins eldivið.
Sem breiddi út sitt birkisag
er brann einn góðan veðurdag.