Björgin.
Í vor fer ég vestur
frá víl og villu.
Senn er hann sestur
sjófugl á sillu.
Látrabjarg er úfið
og för frestast.
Skipunum snúið
frá víginu vestast.
Að Ritnum riðu
dagar með dauða.
Er sigmenn sigu
að Agli Rauða.
Í kuldanum kaldir
lemstraðir líta.
Bjargið er aldir
sverfa og slíta.
Úr Hornbjargi hrynur
úr klakans krumlum.
Starandi stynur
Kögur hjá kumlum.
Nú brakar og brestur
tröllskessa tryllist.
Ef grimmur gestur
af ísnum villist.
Við Rekavík vestur
er ísinn ofinn.
Brakar og brestur
ísbjörn er kominn.
Við Straumnes er seiður
og bergið blikar.
Ríkur upp reiður
og hafísinn hikar.
Við ströndina stendur
útlaginn eini.
Með höfuð og hendur
en sál úr steini.
frá víl og villu.
Senn er hann sestur
sjófugl á sillu.
Látrabjarg er úfið
og för frestast.
Skipunum snúið
frá víginu vestast.
Að Ritnum riðu
dagar með dauða.
Er sigmenn sigu
að Agli Rauða.
Í kuldanum kaldir
lemstraðir líta.
Bjargið er aldir
sverfa og slíta.
Úr Hornbjargi hrynur
úr klakans krumlum.
Starandi stynur
Kögur hjá kumlum.
Nú brakar og brestur
tröllskessa tryllist.
Ef grimmur gestur
af ísnum villist.
Við Rekavík vestur
er ísinn ofinn.
Brakar og brestur
ísbjörn er kominn.
Við Straumnes er seiður
og bergið blikar.
Ríkur upp reiður
og hafísinn hikar.
Við ströndina stendur
útlaginn eini.
Með höfuð og hendur
en sál úr steini.