Kvöldið í kvöl
Kvöldið í kvöld var í senn
fallegt og nautnafullt.

Alveg eins og ég.

Líkt og sál mín þá endurspeglaði
það ástríðu gagnvart þeim sem
þess nutu.

Veitti þeim hlýju, nærveru og gleði.

Á sama máta varð það sorgmætt og fölnaði
þegar hinir sömu hurfu á braut
inn í framtíðina

og við stóðum tvö ein eftir

ég og kvöldið.  
Anna Sæunn Ólafsdóttir
1987 - ...


Ljóð eftir Önnu Sæunni Ólafsdóttur

Kvöldið í kvöl
Myrkrið
Tilvist á tilboði!