Blót.
Til blóts er boðað
bræður mínir enn.
Eftir vor og sumar
kemur vetur senn.
Með söng á vörum:
Skál skál norðanmenn.
Nú heilsar haustið
og hafsis þeyr.
Þökkum það liðna
er lifir og deyr.
Og vina minnumst:
Skál skál syngið meir.
Víktu að vinum
er vaxa þér nær.
Berum fram gleði
brosi hún skær.
Langt fram á morgunn:
Skál því klukkan slær.
bræður mínir enn.
Eftir vor og sumar
kemur vetur senn.
Með söng á vörum:
Skál skál norðanmenn.
Nú heilsar haustið
og hafsis þeyr.
Þökkum það liðna
er lifir og deyr.
Og vina minnumst:
Skál skál syngið meir.
Víktu að vinum
er vaxa þér nær.
Berum fram gleði
brosi hún skær.
Langt fram á morgunn:
Skál því klukkan slær.