Vor.
Er vindur strýkur vor um mínar kinnar
og vetur ekur leið til hallar sinnar.
Þá lýsa kyndlar lífsins bjart um vegi
og leggja grunn að nýjum fögrum degi.
Þá lýsa gyðjur lífsins nýju ári
leysa hélu af jarðar djúpa sári.
Og andar sumars kyssa voga kalda
þá kveður vetur brimsins öldu falda.
og vetur ekur leið til hallar sinnar.
Þá lýsa kyndlar lífsins bjart um vegi
og leggja grunn að nýjum fögrum degi.
Þá lýsa gyðjur lífsins nýju ári
leysa hélu af jarðar djúpa sári.
Og andar sumars kyssa voga kalda
þá kveður vetur brimsins öldu falda.