Þú.
Er ég hugsa til þín í síðasta sinn
skal ég gefa þér drauminn minn.
Og alla þá ást sem í honum lá
allt sem ég þráði en segi ekki frá.
Og bænirnar heitu er brostu til mín
og blikuðu á himni og gengu til þín.
Um öræfaleiðir og óveðursský
yfir í heiminn sem þú dvaldir í.
Er lít út um gluggann í síðasta sinn
þá sindrar máninn á brjóst mitt og kinn.
Er leyndarmál okkar um sumrin skín
sendi ég kveðju frá mér til þín.
skal ég gefa þér drauminn minn.
Og alla þá ást sem í honum lá
allt sem ég þráði en segi ekki frá.
Og bænirnar heitu er brostu til mín
og blikuðu á himni og gengu til þín.
Um öræfaleiðir og óveðursský
yfir í heiminn sem þú dvaldir í.
Er lít út um gluggann í síðasta sinn
þá sindrar máninn á brjóst mitt og kinn.
Er leyndarmál okkar um sumrin skín
sendi ég kveðju frá mér til þín.