Öldrun.
Ég finn á bláum höndum
að blóðið er orðið seigt.
Og leiðir allar skiljast
og ljós mitt orðið veikt.
Ég finn að ég er gleyminn
og græt á kvöldin leynt.
Og bakið orðið bogið
bíð en skipið kemur seint.
Ég finn að vinir eru
sem afmáð veggjakrot.
Og árin mín sem liðu
örsmá brotabrot.
að blóðið er orðið seigt.
Og leiðir allar skiljast
og ljós mitt orðið veikt.
Ég finn að ég er gleyminn
og græt á kvöldin leynt.
Og bakið orðið bogið
bíð en skipið kemur seint.
Ég finn að vinir eru
sem afmáð veggjakrot.
Og árin mín sem liðu
örsmá brotabrot.