Menn og skuggar
Hver man svarta skuggana

sem dönsuðu eitt sinn svo dátt

er skiptust á gjöfum og handaböndum

og kinkuðu kolli hvor til annars

á hvítkölkuðum vegg eftir

að bjartur loginn brann út?


Hver man þig?

Hver man mig?

Hver man okkur sem menn

að löngu brauðstritinu loknu.  
Irrons
1974 - ...


Ljóð eftir Irrons

Menn og skuggar