Hendur þínar.
Heilsaðu beygðum með bros á vör
og blessaðu þá með hlýju.
Því brostin augu bera ör
berðu þeim von að nýju.
Rýtingur í brjóstið bert
og bjartur dagur hrynur.
Sestu og spurðu hver þú ert
þú sagðist góður vinur.
Og hugsaðu um allt sem þú gast gert
og gefðu þér tíma að nýju.
Það lifir allt sem er virðingarvert
og vafið mannlegri hlýju.
og blessaðu þá með hlýju.
Því brostin augu bera ör
berðu þeim von að nýju.
Rýtingur í brjóstið bert
og bjartur dagur hrynur.
Sestu og spurðu hver þú ert
þú sagðist góður vinur.
Og hugsaðu um allt sem þú gast gert
og gefðu þér tíma að nýju.
Það lifir allt sem er virðingarvert
og vafið mannlegri hlýju.