Sumarið.
Þær sungu dansandi dagana alla
drauma meyjarnar ungu.
Og hjartsláttur þeirra hóf sig til fjalla
svo hamraklettarnir sprungu.
Og fjörðurinn grét af heitum harmi
og hjartað sló og barðist.
Hann tregaði þær með tár á hvarmi
og titraði og særðist.
Öll okkar sorg og gleði svona líður
nú skil ég allt sem lifir.
Það er svo margt sem á draumana drífur
er dagarnir ganga yfir.
drauma meyjarnar ungu.
Og hjartsláttur þeirra hóf sig til fjalla
svo hamraklettarnir sprungu.
Og fjörðurinn grét af heitum harmi
og hjartað sló og barðist.
Hann tregaði þær með tár á hvarmi
og titraði og særðist.
Öll okkar sorg og gleði svona líður
nú skil ég allt sem lifir.
Það er svo margt sem á draumana drífur
er dagarnir ganga yfir.