Vinnan.
Hann talaði við þau stutt í síma
og sagðist hafa lítinn tíma.
Ætti erfitt og birgðir að bera
væri í basli og mikið að gera.
Undir stjörnum var hann sólardrengur
sigur þeirra en varla lengur.
Nú þekkir vart mun á réttu og röngu
eins og Róm endur fyrir löngu.
Bjarmi áranna liðinn og læstur
lífið breytist og hver verður næstur.
Blöðin falla en stofnarnir standa
stundir úr bernsku að okkur anda.
En ísinn þiðnar og elfur renna
og æsku dagar úr anda fenna.
Um brekkurnar og blikandi engi
standa rætur djúpt í jörðu lengi.
og sagðist hafa lítinn tíma.
Ætti erfitt og birgðir að bera
væri í basli og mikið að gera.
Undir stjörnum var hann sólardrengur
sigur þeirra en varla lengur.
Nú þekkir vart mun á réttu og röngu
eins og Róm endur fyrir löngu.
Bjarmi áranna liðinn og læstur
lífið breytist og hver verður næstur.
Blöðin falla en stofnarnir standa
stundir úr bernsku að okkur anda.
En ísinn þiðnar og elfur renna
og æsku dagar úr anda fenna.
Um brekkurnar og blikandi engi
standa rætur djúpt í jörðu lengi.