Á ferðinni milli borga e. Lawrence Ferlinghetti
Á ferð í lest yfir
skorna brúna maísakra
skilti sem á er letrað
Ójöfn spor
Nakinn álmviður
eins og blævængir móti himni
Fuglasveimur í kjarri
um það bil að hefja sig til flugs
Hefðbundnu málverki af bóndabæ
bregður fyrir á innanverðu auganu–
Brúnar kýr við kornhlöðu í sól
hundur að að leik
Einmanna og láréttir akrar
breiða úr sér í fjarlægð....
skorna brúna maísakra
skilti sem á er letrað
Ójöfn spor
Nakinn álmviður
eins og blævængir móti himni
Fuglasveimur í kjarri
um það bil að hefja sig til flugs
Hefðbundnu málverki af bóndabæ
bregður fyrir á innanverðu auganu–
Brúnar kýr við kornhlöðu í sól
hundur að að leik
Einmanna og láréttir akrar
breiða úr sér í fjarlægð....
Lawrence Ferlinghetti (f. 1919), bandarískt ljóðskáld, bókaútgefandi og einn "höfuðpaura" beat-skálda.