Ég orti góða eggjaköku e. Nikki Giovanni
Ég orti góða eggjaköku...og át
heitt ljóð...eftir að hafa elskast með þér
Hneppti bílnum...og ók kápunni
heim...í rigningunni...
eftir að hafa elskast með þér
Ég fór yfir á rauðu...og stansaði á
grænu...sveimandi einhvers staðar á milli...
verandi hér og verandi þar...
eftir að hafa elskast með þér
Ég bjó um rúmið...losaði um hárið
...eilítið
ráðvillt...en mér stendur á sama...
tók úr mér tennurnar...skolaði
náttserkinn...stóð
...og lagði mig...
Til svefns...
eftir að hafa elskast með þér
heitt ljóð...eftir að hafa elskast með þér
Hneppti bílnum...og ók kápunni
heim...í rigningunni...
eftir að hafa elskast með þér
Ég fór yfir á rauðu...og stansaði á
grænu...sveimandi einhvers staðar á milli...
verandi hér og verandi þar...
eftir að hafa elskast með þér
Ég bjó um rúmið...losaði um hárið
...eilítið
ráðvillt...en mér stendur á sama...
tók úr mér tennurnar...skolaði
náttserkinn...stóð
...og lagði mig...
Til svefns...
eftir að hafa elskast með þér
Nikky Giovani (f. 1943), bandaræiskt ljóðskáld og baráttukona fyrir mannréttindunum,jafnrétti og jöfnuði.