Salem.
Komið öll með mér
á morgun er of seint.
Ferðin farin er
fagnið því leynt.
Komið allir inn
ykkar losið bönd.
Í síðasta sinn
verða seglin þönd.
Þið dansið í dag
í draumi við lag.
Öllu verður eytt
óttist ekki neitt.
Endurómar hátt
yfir heiminn brátt.
Ljósið það er ég
á ykkar lífsins veg.
Sakleysið er selt
sökum öllum breytt.
Vonum öllum velt
villtum sálum eytt.
Heimi gaf ég allt
út á ystu sker.
Þakkið þúsundfalt
það sem liðið er.
Komin er sú stund
skipið þokast senn.
Farmanns forna lund
fylgir stjörnum enn.
á morgun er of seint.
Ferðin farin er
fagnið því leynt.
Komið allir inn
ykkar losið bönd.
Í síðasta sinn
verða seglin þönd.
Þið dansið í dag
í draumi við lag.
Öllu verður eytt
óttist ekki neitt.
Endurómar hátt
yfir heiminn brátt.
Ljósið það er ég
á ykkar lífsins veg.
Sakleysið er selt
sökum öllum breytt.
Vonum öllum velt
villtum sálum eytt.
Heimi gaf ég allt
út á ystu sker.
Þakkið þúsundfalt
það sem liðið er.
Komin er sú stund
skipið þokast senn.
Farmanns forna lund
fylgir stjörnum enn.