 Silfur öldur
            Silfur öldur
             
        
    Þar sem silfur öldur andans 
gæla við gullinn sand
þar heyri ég söngva hjartans
stíga sinn fegursta dans.
Undir miðnæturhimni stjörnubjörtum
kviknar ást í ungum hjörtum
geislar kvöldsólar vangann strjúka
leika sér við líkama mjúka
Blaka sér vængir og varir faðma
augun umvafin ástarbjarma
við rökkurskil er skimað í skaut
ljúft andartak í lífsins laut
    
     
gæla við gullinn sand
þar heyri ég söngva hjartans
stíga sinn fegursta dans.
Undir miðnæturhimni stjörnubjörtum
kviknar ást í ungum hjörtum
geislar kvöldsólar vangann strjúka
leika sér við líkama mjúka
Blaka sér vængir og varir faðma
augun umvafin ástarbjarma
við rökkurskil er skimað í skaut
ljúft andartak í lífsins laut
    Sigurjón Gunnarsson

