Vængir.
Ég elska þá sem ofar fljúga
yfir auðn og eyði skor.
Því aldrei mun sá élin rjúfa
er ekki hefur kjark og þor.
Ég elska þá sem unna vetri
og elska gömul ævintýr.
Og þá sem vilja verða betri
og verða það sem í þeim býr.
Ég elska vökur á vorin
og velti mér í morgundögg.
Þar sem blika lífs er borin
þá ber ég lífsins þyngstu högg.
yfir auðn og eyði skor.
Því aldrei mun sá élin rjúfa
er ekki hefur kjark og þor.
Ég elska þá sem unna vetri
og elska gömul ævintýr.
Og þá sem vilja verða betri
og verða það sem í þeim býr.
Ég elska vökur á vorin
og velti mér í morgundögg.
Þar sem blika lífs er borin
þá ber ég lífsins þyngstu högg.