Svartir svanir.
Það flugu svartir svanir
að silfurtærri lind.
Og vængjasláttur þeirra
vakti mannsins synd.
Er kirkjugestir kveldsins
krupu við helga mynd.
En flugið vakti fagnað
um fold og öldu sjó.
Og vindur barst af fjöllum
með von um styrk og ró.
Meðan andi ykkar hinna
var hulinn ís og snjó.
En sumir gátu skilið
svana flug og mál.
Dáðust af vængsins kröftum
en kveiktu í þeim bál.
Aðrir riðu röftum
og ræddu engin mál.
Fjaðrirnar sem fljúga
þær finna afl og mátt.
Og þorið eflir styrkinn
yfir þrútið hafið blátt.
Þar sem fár stjörnur lýsa
þær stefna í rétta átt.
að silfurtærri lind.
Og vængjasláttur þeirra
vakti mannsins synd.
Er kirkjugestir kveldsins
krupu við helga mynd.
En flugið vakti fagnað
um fold og öldu sjó.
Og vindur barst af fjöllum
með von um styrk og ró.
Meðan andi ykkar hinna
var hulinn ís og snjó.
En sumir gátu skilið
svana flug og mál.
Dáðust af vængsins kröftum
en kveiktu í þeim bál.
Aðrir riðu röftum
og ræddu engin mál.
Fjaðrirnar sem fljúga
þær finna afl og mátt.
Og þorið eflir styrkinn
yfir þrútið hafið blátt.
Þar sem fár stjörnur lýsa
þær stefna í rétta átt.