Það grípur mig.
Það grípur mig gleði
gangi ég æsku sporin.
Þeir segja mér sumir
þau sáist best á vorin.
Það grípur mig máttur
myrkurs á dimmum stigum.
Meinsemdin í mönnum
er mest í þeirra lygum.
Það grípur mig gleði
er gamlir dagar rísa.
Er bláu djúpin blika
og bjartar nætur lýsa.
Það grípur mig grátur
ég gæti hafa losað.
Hnútana föstu forðum
faðmað meir og brosað.
gangi ég æsku sporin.
Þeir segja mér sumir
þau sáist best á vorin.
Það grípur mig máttur
myrkurs á dimmum stigum.
Meinsemdin í mönnum
er mest í þeirra lygum.
Það grípur mig gleði
er gamlir dagar rísa.
Er bláu djúpin blika
og bjartar nætur lýsa.
Það grípur mig grátur
ég gæti hafa losað.
Hnútana föstu forðum
faðmað meir og brosað.