Kveðja
Köld var okkar kveðjustund
Kalt er myrkrið svarta
Þú skildir eftir sviðna grund
Og sár í mínu hjarta
Svo kvalinn, bæði ljóst og leynt
Og um þig lygavefur
Þú iðrast, það er alltof seint
Þér enginn fyrirgefur
Þig mæðir þetta mikla tjón
En manst er tíminn líður
Að augnabliksins yfirsjón
Hún ævilangt þig svíður
Kalt er myrkrið svarta
Þú skildir eftir sviðna grund
Og sár í mínu hjarta
Svo kvalinn, bæði ljóst og leynt
Og um þig lygavefur
Þú iðrast, það er alltof seint
Þér enginn fyrirgefur
Þig mæðir þetta mikla tjón
En manst er tíminn líður
Að augnabliksins yfirsjón
Hún ævilangt þig svíður