Sefið.
Signið hina snauðu
segið þeim frá mér.
Að ég birtist aftur
er eld við krossinn ber.
Sefið hina hræddu
þeir hlusti eftir mér.
Ljós mitt lýsir öllum
lifir í hjarta þér.
Biðjið fyrir brenndum
er bíður myrkur eitt.
Faðmur minn er opinn
sem eiga ekki neitt.
segið þeim frá mér.
Að ég birtist aftur
er eld við krossinn ber.
Sefið hina hræddu
þeir hlusti eftir mér.
Ljós mitt lýsir öllum
lifir í hjarta þér.
Biðjið fyrir brenndum
er bíður myrkur eitt.
Faðmur minn er opinn
sem eiga ekki neitt.