Bylting.
Það var sólskin og sex
og stúdentar góla.
Það var pæling og pex
í Parísarskóla.
Bárum sterklituð spjöld
með speki og óra.
Það var framvarðafjöld
með fagnandi kóra.
Þessir fánar og flökt
báru helsið á brott.
Vík bardagabrölt
burt allt sem er flott.
Svo var mamma mín mætt
hún mælti og sagði.
Nú er brambolti hætt
ég blankur og þagði.
Tók mig taki til svars
tók frönsku og þýsku.
Svo voru Sartre og Marx
sagðir úr tísku.
og stúdentar góla.
Það var pæling og pex
í Parísarskóla.
Bárum sterklituð spjöld
með speki og óra.
Það var framvarðafjöld
með fagnandi kóra.
Þessir fánar og flökt
báru helsið á brott.
Vík bardagabrölt
burt allt sem er flott.
Svo var mamma mín mætt
hún mælti og sagði.
Nú er brambolti hætt
ég blankur og þagði.
Tók mig taki til svars
tók frönsku og þýsku.
Svo voru Sartre og Marx
sagðir úr tísku.