Konan sem kjagar.
Konuna sem kjagar
kyssti aldrei neinn.
Hennar döpru dagar
dóu einn og einn.
Gráleg var og gömul
með göngustaf sinn.
Ætíð var einsömul
engum bauð hún inn.
Utan um kirtillinn
yfir höfði klút.
Haltraði með sekkinn sinn
saup af ölsins kút
Ein bjó út við hafið
allir muna það.
Allt er eytt og grafið
enn á þessum stað.
kyssti aldrei neinn.
Hennar döpru dagar
dóu einn og einn.
Gráleg var og gömul
með göngustaf sinn.
Ætíð var einsömul
engum bauð hún inn.
Utan um kirtillinn
yfir höfði klút.
Haltraði með sekkinn sinn
saup af ölsins kút
Ein bjó út við hafið
allir muna það.
Allt er eytt og grafið
enn á þessum stað.