Dauðans drykkur.
Ég afber ekki sorgir
og ekki dauðans þel.
Og ekki brenndar borgir
sem byggðust svo vel.
En fyrirgef þó ykkur
sem aldrei ljósin sjá.
Því allt er dauðans drykkur
sem drekkir mannsins þrá.
Við efstu egg og vinda
og ofar jarðarsýn.
Sést töfraljós við tinda
sem togar flest til sín.
Þótt bræðrum hafir bakað
böl og læðst um hljótt
Þá verður alltaf vakað
við sœngina í nótt.
og ekki dauðans þel.
Og ekki brenndar borgir
sem byggðust svo vel.
En fyrirgef þó ykkur
sem aldrei ljósin sjá.
Því allt er dauðans drykkur
sem drekkir mannsins þrá.
Við efstu egg og vinda
og ofar jarðarsýn.
Sést töfraljós við tinda
sem togar flest til sín.
Þótt bræðrum hafir bakað
böl og læðst um hljótt
Þá verður alltaf vakað
við sœngina í nótt.