Komið kæru vinir.
Látið ekki lengi dvelja
látið gleðihörpur slá.
Komið allir kæru vinir
kveðjuskálar fyllum á.
Yljum okkur allir saman
ævin rennur bráðum frá.
Fylgjum sporum fyrri leiða
fyllum andann heitri þrá.
Heyrið gömlu góðu vinir
grátum ekki það sem er.
Enginn kemur aftur hingað
allar stundir nýtum vel.
Þar er líf sem vonir lifa
önnur leið er hættuleg.
Þar er ást er auðna ræður
aðrir fara annan veg.
Oft mér fannst hinn farni vegur
falinn inn í hríðarbyl.
Vorið kemur alltaf aftur
okkur færir birtu og yl.
Þar sem leiðarstjörnur lýsa
liggja sporin okkar heim.
Horfi ég í himinblámann
er hugur minn hjá þeim.
látið gleðihörpur slá.
Komið allir kæru vinir
kveðjuskálar fyllum á.
Yljum okkur allir saman
ævin rennur bráðum frá.
Fylgjum sporum fyrri leiða
fyllum andann heitri þrá.
Heyrið gömlu góðu vinir
grátum ekki það sem er.
Enginn kemur aftur hingað
allar stundir nýtum vel.
Þar er líf sem vonir lifa
önnur leið er hættuleg.
Þar er ást er auðna ræður
aðrir fara annan veg.
Oft mér fannst hinn farni vegur
falinn inn í hríðarbyl.
Vorið kemur alltaf aftur
okkur færir birtu og yl.
Þar sem leiðarstjörnur lýsa
liggja sporin okkar heim.
Horfi ég í himinblámann
er hugur minn hjá þeim.