Dalurinn.
Vermi sólin vota kinn
vakna ég við dalinn minn.
Liggur þar sem leiðin var
litlu sporin allsstaðar.
Áin líður björt og blá
berst um melagrjóti á.
Ósinn bíður endastöð
allra vatnaleiðaröð.
Örlög nálgast öllu nær
en þú saklaus hélst í gær.
Draumurinn um ljúflings dreng
drukknaði í hörðum streng.
Sest ég einn á steininn minn
skín á litla bílinn þinn.
Kirkjubjöllur kveðjan þín
ó komdu aftur barn til mín.
vakna ég við dalinn minn.
Liggur þar sem leiðin var
litlu sporin allsstaðar.
Áin líður björt og blá
berst um melagrjóti á.
Ósinn bíður endastöð
allra vatnaleiðaröð.
Örlög nálgast öllu nær
en þú saklaus hélst í gær.
Draumurinn um ljúflings dreng
drukknaði í hörðum streng.
Sest ég einn á steininn minn
skín á litla bílinn þinn.
Kirkjubjöllur kveðjan þín
ó komdu aftur barn til mín.