Spilin mín.
Spilin mín eru sagnafá
en ég segi þó grand.
Enginn má á þau sjá.
Ástkæra ættarland.
Spilin mín voru svört á lit
ég sló í borðið þungt.
Áfram og engan goluþyt.
Ástkæra Ísland ungt.
Spilin mín öll innilæst
en þá sló ég út ás.
En úr þeim hefur ekkert ræst.
Ísland í aldanna rás.
Spilin mín völdu annað vað
villtust með unna sögn.
Hyldýpi reyndist á röngum stað.
Land mitt land mitt og þögn.
en ég segi þó grand.
Enginn má á þau sjá.
Ástkæra ættarland.
Spilin mín voru svört á lit
ég sló í borðið þungt.
Áfram og engan goluþyt.
Ástkæra Ísland ungt.
Spilin mín öll innilæst
en þá sló ég út ás.
En úr þeim hefur ekkert ræst.
Ísland í aldanna rás.
Spilin mín völdu annað vað
villtust með unna sögn.
Hyldýpi reyndist á röngum stað.
Land mitt land mitt og þögn.