Ég kveð.
Nú skil ég betur og betur
baráttu sumars við vetur.
Og allir kveðjunni kvíða
að kallinu fer að líða.
Ég syrgi för sumardaga
sagt er að allt megi laga.
Þau bíða sporlausu sporin
ég sé þau aftur á vorin.
Ég kveð fuglana sem fara
fjöllin á eftir þeim stara.
Og dalir og grösin gráta
í gær fraus aldan við báta.
baráttu sumars við vetur.
Og allir kveðjunni kvíða
að kallinu fer að líða.
Ég syrgi för sumardaga
sagt er að allt megi laga.
Þau bíða sporlausu sporin
ég sé þau aftur á vorin.
Ég kveð fuglana sem fara
fjöllin á eftir þeim stara.
Og dalir og grösin gráta
í gær fraus aldan við báta.