Heimspeki.
Allur heimspeki hljómur
er hvelfing ein yfir eyðigarð.
Þaðan berst ennþá ómur
enginn veit hvernig tilurð hans varð.
Þessar hugsanir hindra
en hvetja og gefa öllum þrótt.
Þær skína og þær sindra
líkt og stjörnur á heiðskírri nótt.
En erfitt er að skilja
orðin sem fjalla um tilvist manns.
Og ég virði þann vilja
og von sem annast um drauma hans.
er hvelfing ein yfir eyðigarð.
Þaðan berst ennþá ómur
enginn veit hvernig tilurð hans varð.
Þessar hugsanir hindra
en hvetja og gefa öllum þrótt.
Þær skína og þær sindra
líkt og stjörnur á heiðskírri nótt.
En erfitt er að skilja
orðin sem fjalla um tilvist manns.
Og ég virði þann vilja
og von sem annast um drauma hans.