Eldur.
Eldurinn er merkið mitt
því mál hans er heitt.
Bruni hans er sagnasjór
og sverðið líka beitt.
Eldurinn er enn í mér
en allt í honum ferst.
Og í funa hans er allt
sem ég elskaði mest.
Eldurinn á gamla glóð
öll gömlu árin mín.
Á minningar merlar enn
í myrkri á þær skín.
Eldurinn á sorgarsögn
það segja liðin ár.
Komu hans var fagnaði fyrr
en för hans var sár.
því mál hans er heitt.
Bruni hans er sagnasjór
og sverðið líka beitt.
Eldurinn er enn í mér
en allt í honum ferst.
Og í funa hans er allt
sem ég elskaði mest.
Eldurinn á gamla glóð
öll gömlu árin mín.
Á minningar merlar enn
í myrkri á þær skín.
Eldurinn á sorgarsögn
það segja liðin ár.
Komu hans var fagnaði fyrr
en för hans var sár.