Fellingafjöll.
Ég gekk upp á Fellingafjöll.
Yfir ár um gil og gljúfur.
Mér fannst ég þekkja leiðina.
Hinn aldni leiðsögumaður
rúnum ristum af sól og regni
fagnaði ekki er ég stóð á tindinum
og hrósaði sigri.
Ég spurði
hvernig á því stæði.
Hann sagðist
hafa verið hér oft áður.
Yfir ár um gil og gljúfur.
Mér fannst ég þekkja leiðina.
Hinn aldni leiðsögumaður
rúnum ristum af sól og regni
fagnaði ekki er ég stóð á tindinum
og hrósaði sigri.
Ég spurði
hvernig á því stæði.
Hann sagðist
hafa verið hér oft áður.