Samtal.
Henni leið illa.
Eftir mörg erfið ár
og barnmissi.
Börnin sögðu: Farðu til læknis
og fáðu bót meina þinna.
Læknirinn ungi hlustaði
er hún bar upp erindi sitt.
Þögn og hlustunarpípan köld
eins og marmari.
Hann sagðist ekkert finna að.
Hún sagði frá sorginni
sem vildi ekki yfirgefa hana.
Og söknuði er bjó í nóttunni
og drakk tár hennar.
Hann leit á hana og sagði;
En þú átt mörg önnur börn.
Orð hans svifu í gegnum veggi
og loft og hátt til himins.
Og himininn grét
og orðin drupu
á lítinn kross
Eftir mörg erfið ár
og barnmissi.
Börnin sögðu: Farðu til læknis
og fáðu bót meina þinna.
Læknirinn ungi hlustaði
er hún bar upp erindi sitt.
Þögn og hlustunarpípan köld
eins og marmari.
Hann sagðist ekkert finna að.
Hún sagði frá sorginni
sem vildi ekki yfirgefa hana.
Og söknuði er bjó í nóttunni
og drakk tár hennar.
Hann leit á hana og sagði;
En þú átt mörg önnur börn.
Orð hans svifu í gegnum veggi
og loft og hátt til himins.
Og himininn grét
og orðin drupu
á lítinn kross