in memoriam
nú eruð þið horfnar
einsog lýsispillurnar sem þið gleyptuð
í upphafi annarrar kennslustundar
horfnar einsog krítin af töflunni
enginn til að hlýð'ykkur yfir
eldhúsverkin innkaupin og kílóin
<dd><dd>á vigtinni

en þó hefur borið svo við
að ég hef séð ykkur á innsíðum blaðanna
þar sem veruleikinn árnar heilla
í hvítu skarti með rótlaus blóm &
hringa sem eitt sinn glitruðu í gullnámu

<dd><dd>og þegar þið hittist
eftir margra ára fjarveru yfir götóttum
minningunum í ullarkápunum vinsælu getiði
séð að þó vegir lægju til allrar átta
lentuð þið allar á sama stað
<dd><dd>í einsemd eyðublaðanna
í friðsamlegri sambúð raðhúsanna
þar sem hugur ykkar í sófasettinu
framkallar myndir sem aldrei voru teknar  
Einar Már Guðmundsson
1954 - ...
Úr bókinni <a href="http://edda.is/?pid=460" target="new">Ljóð 1980-1995</a>.
Mál og menning, 2002.
Allur réttur áskilinn höfundi.


Ljóð eftir Einar Má Guðmundsson

Jólaljóð
Sagnaþulurinn Hómer
Herhvöt úr norðri
in memoriam