Ground Zero.
Í ræsum og rennum er mafíublóð
ég ræð ekki við þessa niðdimmu nótt.
Á kveldin þeir kyssa öll börnin sín góð
að krossinum lúta því heima er rótt.
Þeir skríða til skrifta með lygi á vör
og skyrpa til hans er þungann einn ber.
Hjá þeim ræður sorinn og fláttskapur för
og ferðin til helvítis er ókeypis hér.
En neðst við Ground Zero er grafarþögn enn
og grípur þar hugann ein mynd er ég finn.
Ég greini þar móður og gullin hans tvenn
er greiparnar spennir með tárin á kinn.
Þegar sólgeislar kveðja með sorgum ég bað
nú siglið burt vonir með gleði í var.
En stormar og hélog þið strax finnið það
stýrið vel og ég bið þá um far.