Þú
Segðu mér hver þú ert
ef þú veist það sjálfur.
Í óravegu hverafjalla,
finnirðu sjálfan þig,
í fjallshlíðum hverfulleikans,
þar sem dalalæðan dvelur.
Láttu vinda vetrarins,
vekja þig til lífsins,
þar sem dauðinn víkur
fyrir vindum vorsins.
(2017)
ef þú veist það sjálfur.
Í óravegu hverafjalla,
finnirðu sjálfan þig,
í fjallshlíðum hverfulleikans,
þar sem dalalæðan dvelur.
Láttu vinda vetrarins,
vekja þig til lífsins,
þar sem dauðinn víkur
fyrir vindum vorsins.
(2017)