SEXTUG
Sextug sit og hugsa.

Hvert fór tíminn
það er svo stutt síðan ég var þrítug
og hrædd við að eldast
en það eltist fljótlega af mér
og ég er sátt við aldurinn
og lífið.

Þegar eg var unglingur
fannst mér konurnar í frystihúsinu,
eldgamlar
en þær kölluðu sig
stelpurnar
ég hló, fannst það fyndið
en nú stend ég í sömu sporum
og kalla mínar vinkonur stelpurnar,
já þannig týnist tíminn.

Lífið er svo miklu meira
en aldur.
Lífið er heilsan, fjölskyldan
vinskapurinn,
án þessa væri lífið
frekar litlaust.
Lifðu og njóttu meðan
heilsan leyfir.

“Lífið er núna”  
H.Hildiberg
1963 - ...
Sextug 2023


Ljóð eftir H.Hildiberg

Sumar.
Úrhellið
Þokan.
Mót vindinum
Gluggað í blöðin
Tindrandi stjörnurnar
Frjósemi hugans
Sumarið
Í sólinni
Regnið
VORIÐ
TANFAR
PEST
Vor
”ÞAÐ ER VON”
Grátbólgin augu
Öfugmæla vorbræðingur
Sólin
Feigðin
Eitt augnablik
flöktandi skuggar
Dyrasíminn
Brostnar vonir
Tregatárin
Ljóð
Sonur
Blóðrauð tár
Karp um guði
Brostið hjarta
Ömmustrákur
Ömmustúfur❤️
Nýfallin mjöllin
LITLA SNÓT ❤️
Ljósið
Hver er tilgangurinn…
REGNBOGANS LÍF 🌈
Rigningardagur
Hversu sárt.
Haustgolan
Brot úr hjartanu.
Rauði stóllinn
Dimmur dagur
Morgunskíman
Haustið
Fegurð náttúrunnar
SEXTUG
Þessi heimur 💔
Sólbrúnka
Blámi himins